Um Ninný
Menntun
Myndlista-og handíðaskóli Íslands, 1972-1975 og 1976-1978.
Myndlistaskóli Reykjavíkur, málun hjá Hring Jóhannessyni./p>
Nám hjá dönsku listakonunni Elly Hoffmann, 1983-1987.
Accademia Del Giglio, Flórens, Ítalía. Málun, 2004.
Truro center for the arts, Castle hill, USA. Mixed media hjá Bonney Goldstein 2008.
Ýmsar upplýsingar
Eftir að Ninný lauk námi árið 1978 frá Myndlista-og handíðaskóla Íslands, kenndi hún mynd og handmennt í fjögur ár. Árið 1982 fluttist Ninný til Danmerkur og bjó þar næstu fimm árin. Hún stundaði nám hjá dönsku listakonunni Elly Hoffmann á þessum árum, auk þess að sækja hina ýmsu kúrsa um alla Danmörku í málun, glerbræðslu og meðferð postulínslita. Síðustu tvö árin kenndi hún samhliða þessu námi sínu í kvöldskóla í Hörsholm teikningu, málun og meðferð postulínslita.
Árið l987 fluttist Ninný heim og á árunum 1988-1998 kenndi hún mynd og handmennt á vinnustofu sinni. Á sama tíma var hún starfandi myndlistarmaður og hélt nokkrar sýningar. Nú er Ninný hætt allri kennslu og starfar eingöngu við myndlistina. Hún notar olíu, akríl og vatnsliti, auk blandaðrar tækni.
Árið 2000 hlaut Ninný heiðurslaun úr menningarsjóði Garðabæjar. Ninný er félagi í SIM, Sambandi íslenskra myndlistarmanna.
Ninný hefur látið gefa út kort eftir verkum sínum og fást þau í nokkrum verslunum og galleríum.
Eftirtaldir aðilar hafa notað verk eftir Ninný á kort og annað efni, sem hefur verið gefið út, yfirleitt til styrktar góðgerðarmálum.
- Heimastoð Krabbameinslækningadeild Landspítalans.
- Soroptimistaklúbbur Kópavogs.
- Soroptimistaklúbbur Grafarvogs.
- Thorvaldsens félagið.
- Félag fólks, sem misst hefur útlim.
- Klúbbur matreiðslumeistara.
- Barnaspítali Hringsins.
- Félag eldri borgara í Reykjavík.
- Bæjarsjóður Garðabæjar.
- Bæjarsjóður Kópavogs.
- Orkuveita Reykjavíkur.
- Byko.
- Plastprent.
- Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen.
- Sparisjóðurinn í Garðabæ.
- Landspítalinn.
- Verkstjórafélag Reykjavíkur.
- Bæjarsjóður Garðabæjar.
- Tónmenntaskóli Reykjavíkur.
- Flugfreyjufélag Íslands.
- Líknardeildin Kópavogi.
- Landsbanki Íslands.
Vinnustofur
Korpúlfsstaðir ogBaugakór 6, 203 Kópavogur
Símar: 5659099, 8619671
ninny@ninny.is
Verið velkomin að hafa samband og líta við.




